Æfingar

Lítið leyndarmál – samvinna

Veldu eina persónu til að vinna með. Skrifaðu um hana í fimm mínútur þar sem upplýsingarnar sem þú hefur fengið um persónuna koma fram án þess að það sé sagt berum orðum.

Leyfðu sessunaut þínum að lesa textann. Svo á hann að giska á hvaða leyndarmáli persónan þín býr yfir.

  • María er hræðilegur kokkur.
  • Baldvin svindlaði á prófinu.
  • Viktoría þolir ekki Helgu.
  • Daði er hræddur við yfirmann sinn.
  • Anna öfundar systur sína.
  • Guðni kyssti kærustuna hans Jóa.

 

man and woman kissing under the sun

Markmið æfingar

Að orða hlutina „óbeint“. Önnur skemmtilegri útfærsla: Kennari útbýtir miðum með mismunandi „leyndarmálum“.