Hér eiga sex nemendur að vinna saman. Hefjið leikinn á því að brjóta blað eins og harmonikku í sex hluta. Sá sem tekur við blaðinu má ekki sjá það sem hinn/hinir hafa skrifað.
Svarið eftirfarandi spurningum (ein á mann):
- Hver var hann/hún/það?
- Hvar var hann/hún/það?
- Hvað var hann/hún/það að gera?
- Hvað sagði hann/hún/það?
- Hvað sagði hann/hún/það við fólkið?
- Hvernig endar sagan?
Sá sem byrjaði les söguna upphátt fyrir hina.