Leikur |
Prófaðu að ramma inn sögu með því að hafa fyrsta orðið það sama og hið síðasta. Láttu ekki þar við sitja, láttu hverja málsgrein hefjast á orðinu sem sú á undan endaði á. Ekki er verra ef þér tekst að nota orðið, sem er endurtekið, í annarri merkingu, t.d. hól (í merkingunni hóll) og hól (í merkingunni hrós) eða sagnorðið að taka og nafnorðið taka.
Bygging |
Skrifaðu um persónu sem skiptir um skoðun í miðri sögu. Hvað verður til þess að henni snýst hugur?
Tími |
Skrifaðu stutta sögu (ekki meira en 1000 orð) þar sem átök milli tveggja persóna eru rakin aftur á bak. Sagan byrjar þar sem spennan er í rénun og fikrar sig aftur að því sem olli togstreitunni. Hvaða atburður markar þáttaskil í samskiptum persónanna? Hvernig breytast viðhorf þeirra? Hvaða áhrif hefur atburðurinn eða ákvarðanir persónanna á örlög þeirra?
Tími |
Skrifaðu um einhvers konar keppni, t.d. handboltamót, kapphlaup, róðrakeppni eða skákmót. Skrifaðu þrjár útgáfur.
- Láttu frásögnina byrja á því þegar keppnin hefst.
- Spólaðu aftur í tímann og láttu frásögnina hefjast þegar aðalpersónan fréttir af keppninni.
- Nú skaltu byrja þar sem aðalhetjan er að undirbúa sig fyrir keppni.
- Hvaða útgáfa heppnaðist best? Af hverju?