Æfingar

Flokkur > Bygging

Bygging sett upp í töflu

Er gagnlegt að nota sniðmát til að ákvarða byggingu sögunnar? Það hentar sumum vel og reyndar sakar ekki að prófa það. Hér má sjá nokkurs konar eyðublað til að gera ágrip af sögunni.

  • „Vinnuheiti“ sögunnar:
  • Um hvað er sagan? (Ein málsgrein)
    • Hluti I: Átök (Markmið söguhetju og andstæðings stangast á)
    • Hluti II: Bakgrunnur (Hvað leiddi til þessara aðstæðna?)
    • Hluti III: Ris (Uppgjör/ afhjúpun)
    • Hluti IV: Lausn (Afleiðingar)
brown rock formation

Markmið æfingar

Að „teikna“ byggingu sögu fyrirfram til að fá yfirlit yfir söguna í fáum dráttum. Þegar nemendur hafa mátað söguna sína inn í svona ramma verður auðveldara að greina byggingu í þeim sögum sem eru til umfjöllunar hverju sinni.