Skipta má bréfaskriftum í tvennt eftir því hver markmiðin með þeim eru. Bréf sem send eru t.d. fyrirtækjum eða stofnunum teljast til formlegra bréfa en þau sem stíluð eru á ástvini eða fjölskyldumeðlimi eru persónuleg. Uppsetningin er í stuttu máli þessi:
- Staður (í þgf.) og dagsetning efst í hægra horni
- Ávarp til viðtakandans
- Texti bréfsins
- Kveðja og undirskrift sendandans (aðeins neðar og til hægri)